Fréttir

Látinn eftir umferðarslys á Reykjanesbraut
Föstudagur 9. febrúar 2024 kl. 14:48

Látinn eftir umferðarslys á Reykjanesbraut

Karlmaður er látinn eftir alvarlegt umferðarslys sem varð á Reykjanesbraut í Hafnarfirði, á móts við álverið í Straumsvík, þriðjudaginn 30. janúar. Tilkynning um slysið barst lögreglu kl. 18:58. Þar rákust saman fólksbifreið og vöruflutningabifreið, en þeim var ekið úr gagnstæðri átt. Maðurinn var annar ökumannanna.

Hinn látni hét Eiríkur Örn Jónsson og lætur hann eftir sig unnustu og fjögur börn.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka tildrög slyssins.