Bygg
Bygg

Fréttir

Mánudagur 7. júlí 2003 kl. 20:30

Láta varnarliðsmann ekki af hendi

Ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins segir að viðbrögð íslenska yfirvalda við formlegri beiðni bandarískra yfirvalda þess efnis að Íslendingar afhendi bandarískum yfirvöldum varnarliðsmann sem hefur játað að hafa stungið mann með hnífi í miðborg Reykjavíkur í byrjun síðasta mánaðar hafi verið þeim til álitshnekkis. Í fréttum Útvarps kom fram að utanríkisráðuneytið telur að ríkissaksóknari brjóti lög með því að neita að afhenda bandarískum yfirvöldum varnarliðsmanninn. Ráðuneytisstjórinn minnir á að málið komi upp á viðkvæmum tíma í varnarsamstarfi ríkjanna.

Ungi maðurinn var stunginn fimm sinnum með hnífi þegar fjöldaslagsmál brutust út í Hafnarstræti þann 1. júní milli varnarliðsmanna og Íslendinga. Grunur lögreglu beindist fyrst að þremur varnarliðsmönnum en þeim var sleppt eftir að maðurinn sem nú er í haldi gekkst við brotinu. Hann játaði fyrst hjá herlögreglunni á Keflavíkurflugvelli sem afhenti svo manninn íslenskum yfirvöldum. Lögreglu hér grunar hinsvegar að fleiri hafi átt hlut að árásinni og að tveimur hnífum hafi verið beitt. Þann grunn byggir hún meðal annars á framburði vitna. Fórnarlambið var í bráðri lífshættu um tíma og lögregla hefur rannsakað málið sem tilraun til manndráps.

Bandarísk yfirvöld vilja draga manninn sem nú er í haldi fyrir herrétt og óskuðu eftir að fá hann afhentan. Ríkissaksóknari hefur hinsvegar verið því mótfallinn að veita varnarliðinu lögsögu í málinu en utanríkisráðuneytið vitnar í viðbót við varnarsamning Íslands og Bandaríkjanna um að samningsaðilar eigi að taka beiðni um að hverfa frá lögsögu til vinsamlegrar athugunar þegar sá sem leggur fram beiðnina telur það miklu máli skipta.

Í bréfinu sínu til forsætisráðuneytisins í dag gerir ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins margvíslegar athugasemdir við meðferð íslenskra stjórnvalda á málinu. Hann álítur meðal annars að ríkissaksóknari hafi með neitun sinni brotið gegn að minnsta kosti tveimur greinum viðaukans við varnarsamningsins. Í bréfinu segir að þegar sé farið að bera á erfiðleikum í málum sem unnin eru í samvinnu við Varnarliðið. Það hafi til dæmis lýst því óformlega yfir að engir varnarliðsmenn verði framar afhentir íslenskum yfirvöldum þegar verið að rannsaka hugsanleg brot þeirra gegn íslenskum ríkisborgurum.

Utanríkisráðuneytið telur að framselja beri lögsögu í málinu til bandarískra stjórnvalda eins fljótt og kostur er og íslensk stjórnvöld verði að standa við lagalegar og þjóðréttarlegar skuldbindingar gagnvart Bandaríkjunum.

Sakborningurinn í málinu er í gæsluvarðhaldi sem rennur út á miðvikudaginn. Utanríkisráðuneytið segir hinsvegar í bréfi sínu að nú stefni í að bandarísk yfirvöld krefjist þess fyrir dómi að hann verði látin laus þar sem röng stjórnvöld óski gæsluvarðhaldsins. Rúv greindi frá þessu.
Bílakjarninn
Bílakjarninn