Langþráð rigning handan við hornið

Faxaflói
Hæg vestlæg átt og skýjað með köflum, en suðvestan 5-10 og þykknar upp annað kvöld. Hiti 13 til 18 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á fimmtudag: Suðvestan 5-10 m/s, skýjað vestanlands og súld úti við ströndina, en annars hægari og víða bjartviðri. Hiti 12 til 20 stig, hlýjast á Austurlandi. Á föstudag: Sunnan 5-8 m/s og dálítil rigning á vestanverðu landinu, en annars hægviðri og bjart. Hlýtt veður, einkum norðan- og austanlands. Á laugardag og sunnudag: Fremur hæg breytileg átt og víða lítilsháttar væta. Hiti 11 til 16 stig. Á mánudag og þriðjudag: Útlit fyrir norðanátt með vætu fyrir norðan, en þurru syðra. Kólnar í veðri.