Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Landsbankinn fellir niður fjölda lána til stofnfjárkaupa í spkef
Föstudagur 16. desember 2011 kl. 15:02

Landsbankinn fellir niður fjölda lána til stofnfjárkaupa í spkef

Landsbankinn mun fella niður nær öll lán til 500 einstaklinga og lögaðila vegna stofnfjárkaupa í Sparisjóðnum í Keflavík, Sparisjóði Húnaþings og Stranda og Sparisjóði Vestfirðinga síðla árs 2007. Með þessum ákvörðunum Landsbankans verður endir bundinn á óvissu í málum þeirra einstaklinga og lögaðila sem fengu lán til kaupa á stofnfé í  fyrrnefndum sparisjóðum í árslok 2007.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Þann 24. nóvember 2011 dæmdi Hæstiréttur Íslands í málum vegna aukningar stofnfjár í Byr sparisjóði og Sparisjóði Norðlendinga í lok árs 2007. Niðurstaðan fól í sér að stofnfjáreigendur voru sýknaðir af kröfum um greiðslu lána sem veitt voru til kaupa á stofnfé í sparisjóðunum við stofnfjáraukningu þeirra. Landsbankinn tók þessa ákvörðun að eigin frumkvæði.

Landsbankinn hf. hefur farið yfir dóma Hæstaréttar með tilliti til þeirra lána sem bankinn er kröfuhafi að í dag og veitt voru til kaupa á nýju stofnfé í Sparisjóðnum í Keflavík, Sparisjóði Húnaþings og Stranda og Sparisjóði Vestfirðinga í lok árs 2007, áður en þeir voru sameinaðir undir merkjum Sparisjóðsins í Keflavík.

Um er að ræða rétt rúmlega 500 lán til einstaklinga og 30 lán til lögaðila sem eru nú á bókum Landsbankans eftir samruna við Spkef í mars á þessu ári.

Með vísan til niðurstöðu í áðurnefndum dómum mun Landsbankinn fella flest þessara lána niður að eigin frumkvæði. Þetta er þó ekki án undantekninga, t.d. ef stofnfjárbréf hafa verið seld en andvirðinu ekki ráðstafað til greiðslu lánsins eins og samkomulag var um.

Bankinn mun strax yfirfara öll stofnfjárlán sem þarna um ræðir og tilkynna hverjum og einum lántaka sérstaklega um niðurstöðuna.

Þær greiðslur sem lántakar hafa innt af hendi til Landsbankans og/eða Spkef vegna þeirra lána sem nú verða felld niður, verða endurgreiddar.

Með þessum ákvörðunum Landsbankans verður endir bundinn á óvissu í málum þeirra einstaklinga og lögaðila á landsbyggðinni sem fengu lán til kaupa á stofnfé í fyrrnefndum sparisjóðum í árslok 2007. Jafnframt felur þessi niðurstaða í sér viðurkenningu á því að ráðgjöf til kaupenda vegna þessarar stofnfjáraukningar hafi af hálfu viðkomandi sparisjóða verið ýmist röng eða ófullnægjandi.

Frá fundi í Stapa þar sem tilkynnt var um samruna Spkef og Landbankans, 7. mars sl. Á myndinni eru Einar Hannesson, fráfarandi Sparisjóðsstjóri og núverandi útibússtjóri Landsbankans, Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans og Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra. VF-mynd/pket.