Landsbankinn á 60 íbúðir á Suðurnesjum
Af 230 íbúðum sem eru í eigu Landsbankans eru 60 á Suðurnesjum. Þetta kemur fram í yfirliti sem bankinn hefur sent til fjölmiðla. Af þessum 60 íbúðum eru 13 í útleigu, 24 til sölu og 23 í byggingu eða ekki tilbúnar til sölu.
Vegna umræðu um húsnæðis- og leigumarkað undanfarið vill Landsbankinn upplýsa um stöðu fasteigna sem bankinn hefur eignast:
Landsbankinn hefur mótað sér skýra stefnu um sölu fullnustueigna sem miðar að opnu og gagnsæju verklagi og má kynna sér hvernig því er háttað á vef bankans og dótturfélaga. Viðskiptavinir bankans, væntanlegir kaupendur, samkeppnisaðilar og aðrir hagsmunaðilar geta kynnt sér það ferli sem unnið er eftir á meðan fullnustueign er í umsýslu bankans. Íbúðarhúsnæði viðskiptavina er ein göngu selt hjá fasteignasölum og er ekki auglýst til sölu á vef bankans eða dóttur félaga hans. Fasteignir eru jafnan skráðar til sölu hjá tveimur viðurkenndum fasteignasölum og eru að lágmarki boðnar til sölu í eina viku áður en gengið er að tilboði.
Bankinn telur mikilvægt að gera grein fyrir þessum málum þar sem því hefur verið haldið fram að bankar og þar með Landsbankinn sitji á íbúðum og haldi þannig uppi verði, bæði á sölu- og leiguíbúðum. Sú staðhæfing er röng. Í eigu bankans eru 230 íbúðir og er um 20% þeirra á byggingarstigi. Stefna Landsbankans er að setja í sölu allar íbúðir sem bankinn eignast eins fljótt og unnt er.
Í útleigu eru 73 íbúðir og hefur sá fjöldi farið vaxandi á undanförnum misserum. Íbúðir eru undantekningarlaust leigðar til gerðarþola og miðast leiga við markaðsverð á hverjum tíma en fer aldrei umfram það. Bankinn stundar enga leigumiðlun og leigir aldrei út íbúðir eftir að þær hafa verið tæmdar heldur kemur þeim þá sem fyrst í sölu. Því er ljóst að eignir bankans hafa takmörkuð áhrif á framboð eða verð á leigumarkaði, segir í tilkynningu bankans.