Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Landrisið með miðju norðvestan við Þorbjörn heldur áfram
Föstudagur 3. nóvember 2023 kl. 14:41

Landrisið með miðju norðvestan við Þorbjörn heldur áfram

Veðurstofa Íslands segir að samkvæmt þeim gögnum sem voru tekin saman klukkan 11:00 í morgun sést að landrisið með miðju norðvestan við Þorbjörn heldur áfram. Þenslan er af völdum kvikuinnskots á um 4 km dýpi.

Skjálftavirkni heldur áfram á svæðinu af völdum spennubreytinga í skorpunni sem innskotið veldur. Skjálftahrinan var ákafari eftir miðnætti og til morguns en frá miðnætti hafa um 1000 jarðskjálftar mælst á svæðinu.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Stærstu skjálftarnir í nótt virðast raða sér í norður-suður stefnu vestan Þorbjarnar. Slíkar sprungur eru þekktar á svæðinu en þær safna spennu sem tengist landreki og geta hrokkið vegna spennu frá innskotum.