Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Landris heldur áfram við Svartsengi
Ljósmynd: Golli
Miðvikudagur 27. desember 2023 kl. 11:17

Landris heldur áfram við Svartsengi

Hættumatskort Veðurstofu Íslands hefur gildistíma til kl. 18:00 þann 29.desember. Samkvæmt núgildandi hættumatskorti Veðurstofu Íslands er í Grindavík töluverð hætta á jarðskjálftum, sprungum og sprunguhreyfingum. Íbúum Grindavíkur er áfram heimilt að fara og dvelja heima hjá sér þar til breytingar á hættumatskorti gefa tilefnis til annars, sem gæti gerst með skömmum fyrirvara. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.

Sérstaklega er þó ítrekað að;

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Eldgos getur hafist nágrenni Grindavíkur með stuttum fyrirvara. 

Erfitt getur reynst að tryggja öryggi þeirra sem dvelja eða gista inni á hættusvæði.  Þeir sem fara inn á merkt hættusvæði gera það á eigin ábyrgð.

Viðbragð björgunarsveita er áfram skert. Engin björgunarsveit verður í Grindavík. Kallið eftir aðstoð með því að hringja í 112.

Hefjist gos í eða við Grindavík verða send út sms skilaboð á gsm síma inn á svæðinu með þessum texta: 

RÝMING RÝMING!  Yfirgefið svæðið hratt og örugglega, hringið í 112 ef ykkur vantar aðstoð.  RÝMING RÝMING …….  EVACUATE! Leave the area quickly and safely, call 112 if you need help.

Lögregla sinnir eftirliti í og við Grindavík eins og verið hefur allan sólarhringinn.

Liðsmenn björgunarsveitarinnar í Grindavík eru dreifðir um landið og ekki til staðar í bænum.

Mögulegar flóttaleiðir:  Nesvegur, Suðurstrandarvegur, Grindavíkurvegur.