Bygg
Bygg

Fréttir

Landhelgisgæsluna og innanlandsflug til Suðurnesja
Regnbogakapparnir, Bjarni, Guðmundur og Halldór með Páli ritstjóra og Sigfúsi auglýsingastjóra VF.
Fimmtudagur 18. apríl 2013 kl. 15:59

Landhelgisgæsluna og innanlandsflug til Suðurnesja

Regnbogakappar á ferð um Suðurnesin.

Efstu frambjóðendur Regnbogans eru bjartsýnir á komandi kosningar þrátt fyrir að framboðið hafi ekki komið vel út í skoðanakönnunum að undanförnu. Þeir voru á yfirreið vegna komandi kosninga á Suðurnesjum í dag.

Bjarni Harðarson fyrrverandi bókasali, rithöfundur og þingmaður er í efsta sæti en Suðurnesjamaðurinn Guðmundur S. Brynjólfsson, rithöfundur og djákni er í 2. sæti. Hann þekkir vel til á svæðinu og segir að þeir kappar hafi fengið góðar viðtökur þar sem þeir hafi komið við. Þeir kappar segja að atvinnumálin séu mál málanna á Suðurnesjum, klára þurfi álver en einnig að horfa til annarra kosta í þeim efnum. Guðmundur hefur í greinum bent á ýmsa möguleika fyrir svæðið eins og að flytja Landhelgisgæsluna og innanlandsflugið til Keflavíkurflugvallar. „Við sjáum að öll eru þessi mál innan seilingar – ef menn taka sig til og fara að stjórna og hætta að láta sérhlífna embættismenn „bullshita í sér,“ sagði Guðmundur.

Bílakjarninn
Bílakjarninn