Landhelgisgæslan og Varnarliðið í sprengjuleit
Í síðustu viku stóð Landhelgisgæslan fyrir sprengjuleit á svæðinu norðvestur af Stapafelli á Reykjanesi. Einnig tóku 25 starfsmenn vopnadeildar varnarliðsins þátt í leitinni. Leitir af þessu tagi eru gerðar reglulega á æfingasvæðum og sprengjueyðingasvæðum á Reykjanesi sem varnarliðið hefur haft til afnota. Við leitina fannst mikið af sprengifimum hlutum, sprengjubrotum, skotfærum og púðri.
Svæðið norðvestur af Stapafelli hefur verið notað sem sprengjueyðingarsvæði fyrir varnarliðið á Keflavíkurflugvelli en Landhelgisgæslan hefur einnig notað svæðið til að eyða sprengjum fyrir varnarliðið þar sem Landhelgisgæslan tók alfarið við þeim málaflokki fyrir varnarliðið árið 2002.
Á þessu ári hefur Landhelgisgæslan staðið fyrir leit á svæðinu í kringum Kleifarvatn, Vogaheiði og Stapafell með góðum árangri. Fundist hafa yfir 100 hlutir sem hefur verið eytt.
Svæðið sem leitað var á í síðustu viku er mjög vel merkt með skiltum en ekki afgirt. Það er mikilvægt að fólk sem finnur torkennilega hluti á svæðinu láti vera að snerta þá og tilkynni þá til Landhelgisgæslunnar eða lögreglu við fyrsta tækifæri.
VF-myndir: Landhelgisgæslan / Adrian King: Á efri myndinni má sjá kveikjubúnað og forsprengju sem fannst við leitina í síðustu viku. Á neðri myndinni eru starfsmenn bandaríska hersins við leit.