Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Landhelgisgæslan hvetur til aðgæslu við ströndina vegna slæmrar veðurspár
Ölduspárkort fengið úr Brunni Veðurstofunnar og gildir það klukkan 18.00 á morgun.
Miðvikudagur 4. nóvember 2020 kl. 21:08

Landhelgisgæslan hvetur til aðgæslu við ströndina vegna slæmrar veðurspár

Landhelgisgæsla Íslands vekur athygli á að stormspár eru í gildi á 16 af 17 spásvæðum Veðurstofunnar á hafinu umhverfis landið en gert er ráð fyrir mjög hvassri suðvestanátt á morgun og fram á föstudag. Á sama tíma gera ölduspár ráð fyrir mikilli ölduhæð sunnan- og vestanlands.

Stórstreymt var síðastliðinn mánudag og er sjávarstaða enn nokkuð há, en gera má ráð fyrir að þessi mikla ölduhæð geti hækkað sjávarstöðu enn frekar vegna áhlaðanda. Landhelgisgæslan hvetur því til aðgæslu við ströndina, bæði í höfnum en ekki síður þar sem sjór getur gengið á land.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024