Landhelgisbrjótur í Sandgerði
Lögreglan stendur nú vakt við íslenskt fiskiskip sem liggur við festar í Sandgerði en þangað kom skipið í morgun eftir að það var staðið að ólöglegum veiðum suðvestur af landinu í gær. Skipið hafði verið svipt veiðileyfi og sást til þess þegar Fokker-flugvél Landhelgiæslunnar var á eftirlitsflugi yfir svæðinu í gær. Var skipstjóranum umsvifalaust gefin fyrirmæli um að halda til næstu hafnar og verður mál hans tekið fyrir í dag.
VF-mynd: Þorgils