Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Landeigandi ósáttur við skipulagstillögu
Fimmtudagur 26. júlí 2007 kl. 13:58

Landeigandi ósáttur við skipulagstillögu

Sæmundur Þórðarson, landeigandi á Stóru Vatnsleysu, segir það orðum aukið að hann hafi lokað veginum sem liggur að Keili eins og fjölmiðlar greindu frá fyrir síðustu helgi. Hins vegar sé ekki ólíklegt að hann loki veginum fyrirvaralaust. Þá geti fólk átt það á hættu að lokast inn á svæðinu með bíla sína. „Vegurinn var ekki lokaður, það var bara verið að setja upp hlið sem tók einn dag,“ segir Sæmundur sem er ósáttur við breytt aðalskipulag svæðisins. Hann segir að í raun sé verið að taka af honum allan umráðarétt á eigin landi þar sem friðlýsa eigi allt svæðið.

Sæmundur segir að um sé að ræða einkaveg sem nú sé í slæmu ásigkomulagi vegna mikils ágangs.  Ekki síst þess vegna sé hann að setja upp hlið og takmarka umferð um veginn. Hann hafi sjálfur séð um viðhald vegarins alla tíð og hið opinbera ekki viljað taka neinn þátt í því. „Það getur enginn einstaklingur staðið í því að halda úti vegasambandi fyrir almenning í landinu,“ segir Sæmundur. „Það rak á eftir mér að gera eitthvað í málinu þegar sveitarfélagið ætlar að fara að friðlýsa svæði sem ég hef lofað fólki að fara um. Það á bara að taka þetta af mér og það gengur ekki,“ segir Sæmundur.

Birgir Örn Ólafsson, forseti bæjarstjórnar, segir að um sé að ræða aðalskipulagstillögu sem sé í venjulegu ferli til umfjöllunar og umræðu. Þar sé kallað eftir viðbrögðum almennings, landeiganda sem og annarra sem málið varða.

Birgir segir að í aðalskipulagstillögum Sveitarfélagsins Voga 2007-2027,  sem unnið er að um þessar mundir, séu einungis tvö svæði sem nú þegar hafa verið friðlýst en það eru Kálfatjörn og Staðarborg. Nokkur önnur svæði eru síðan á náttúruminjaskrá sem ekki flokkast sem friðlýst svæði í dag. Þegar talað er um friðlýsingu á umræddu svæði er væntanlega verið að vitna til svokallaðrar hverfisverndar en sá þáttur er nýr í aðalskipulagstillögum sveitarfélagsins. Hverfisverndin er ekki lögformleg friðun á tilteknum svæðum en setur ákveðnar takmarkanir fyrir uppbyggingu á þeim, sem nánar er útlistað í skilmálum sem sveitarfélagið setur. Hverfisvernduð svæði útiloka ekki möguleika á uppbyggingu í framtíðinni þar sem hægt er að aflétta hverfisverndinni að undangengnu ákveðnu ferli og breytingum á aðalskipulagi sé vilji fyrir því hjá sveitarfélaginu, að sögn Birgis.
„Það er ljóst að þessi þáttur getur skapað viðbrögð og ekkert nema eðlilegt að svo sé enda ný nálgun í aðalskipulagsvinnu í sveitarfélaginu. Það er jákvætt að íbúar, landeigendur og aðrir sem málið varðar sendi sveitarfélaginu formlegar athugasemdir svo hægt sé að meta þær áður en kemur til formlegrar afgreiðslu aðalskipulagstillagna sveitarfélagsins,“ sagði Birgir.


Mynd: Horft til Keilis ofan af Trölladyngju. Vogar og Reykjanesbær í baksýn. Keilir hefur lengi verið vinsælt útsýnisfjall á meðal útvistarfólks en óvíst verður með aðgengi á næstunni.

Ljósmynd: elg.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024