Bygg
Bygg

Fréttir

Landað úr Gottlieb GK við Hópsnesvita
Föstudagur 15. maí 2015 kl. 18:14

Landað úr Gottlieb GK við Hópsnesvita

Í dag var öllum afla sem var í Gottlieb GK á strandstað við Hópsnes landað úr bátnum við Hópsnesvita. Björgun bátsins úr fjörunni tókst vel og nú er unnið að því að koma Gottlieb á vagn sem mun flytja hann til Reykjanesbæjar.

Tvær stórvirkar beltagröfur voru fengnar til að koma bátnum af strandstað og hófs vinna við það snemma í morgun. Í hádeginu var Gottlieb GK kominn upp á fjörukambinn og um miðjan dag hófst svo vinna við að koma bátnum upp á veg. Það gekk eins og í sögu og báru gröfurnar bátinn á milli sín.

Þegar komið var upp undir Hópsnesvita gat hafist löndun úr bátnum. Á milli þrjú og fjögur tonn af fiski voru um borð. Þau voru hífð á vörubíl og í framhaldi átti að hefjast handa við að koma bátnum á vagn sem átti síðan að flytja flakið í Skipasmíðastöð Njarðvíkur.

Meðfylgjandi myndskeið tók Hilmar Bragi á vettvangi í dag.





Bílakjarninn
Bílakjarninn