Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Land rís áfram við Svartsengi
Hagafell. Ljósmynd: elg
Þriðjudagur 12. desember 2023 kl. 15:27

Land rís áfram við Svartsengi

Áfram líkur á öðru kvikuhlaupi og einnig eldgosi

Land heldur áfram að rísa við Svartsengi. Hægt hefur aðeins á landrisinu frá því á föstudag, en hraðinn á landrisinu er engu að síður meiri en mældist fyrir 10. nóvember þegar að kvikugangurinn sem liggur undir Grindavík myndaðist. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.

Á meðan að kvika heldur áfram að safnast fyrir við Svartsengi eru líkur á öðru kvikuhlaupi og einnig eldgosi.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Ef til kvikuhlaups kemur er líklegast að kvikan hlaupi aftur inn í kvikuganginn sem myndaðist 10. nóvember. Líklegasti upptakastaður eldgoss er norður af Grindavík í átt að Hagafelli og svæðinu við Sundhjúksgíga.

Skjálftavirkni hefur haldist nokkuð svipuð síðustu daga. Skjálftavirknin er áfram væg og er mest á svæðinu við Hagafell.