Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Land hefur risið um sjö sentimetra og kvikuinnflæði fjórfalt meira
Mánudagur 6. nóvember 2023 kl. 13:00

Land hefur risið um sjö sentimetra og kvikuinnflæði fjórfalt meira

Aflögunarmælingar sýna að landris heldur áfram á svæðinu NV við Þorbjörn og eru vísbendingar um aukinn hraða á þenslu frá því á föstudaginn 3. nóvember. Frá 27. Október hefur land risið um 7 sentimetra skv. GPS mælistöð á Þorbirni. Aflögunin verður vegna kvikusöfnunar í syllu á um 5 km dýpi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.

Skv. uppfærðum líkanreikningum, sem byggja á gögnum frá 27. október til 3. nóvember, er syllan orðin tvöfalt stærri en þær fjórar syllur sem hafa myndast við Þorbjörn frá árinu 2020. Innflæði inn í sylluna er metið um 7,5 m3/s sem er fjórfalt hraðar en fyrri innskot við Þorbjörn.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Á meðan að kvikusöfnunin heldur áfram má gera ráð fyrir skjálftavirkni á Reykjanesskaga vegna þess að kvikuinnskotið veldur aukinni spennu á svæðinu.

Síðasta sólarhring hafa um 1300 jarðskjálftar mælst á Reykjanesskaga, þar af þrír skjálftar yfir 3 að stærð. Stærsti skjálftinn varð um 3 km NA við Þorbjörn og mældist 3,6 að stærð um kl. 7 í morgun.