Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Lagardère leggur fram beiðni um lögbann á Isavia
Mánudagur 18. desember 2017 kl. 11:48

Lagardère leggur fram beiðni um lögbann á Isavia

- Beiðnin lögð fram vegna yfirvofandi afhendingar trúnaðargagna

Lagardère Travel Retail (Lagardère) ehf. hefur farið þess á leit við sýslumannsembættið á höfuðborgarsvæðinu að lögbann verði lagt á afhendingu Isavia ohf. á mikilvægum trúnaðargögnum um fyrirtækið til þriðja aðila sem Isavia hefur í sinni vörslu í kjölfar forvals (samkeppni) um leigu á aðstöðu undir verslunar- og veitingarekstur í Flugstöð Leifs Eiríkssonar árið 2014. Um er að ræða viðkvæmar fjárhagsupplýsingar og viðskiptaskilmála um starfsemi Lagardère. Afhending gagnanna væri brot á trúnaðarskyldu Isavia við Lagardère en einnig á samkeppnislögum nr. 44/2005.

Lagardère tók þátt í  forvali (samkeppni) ásamt fleiri fyrirtækjum, innlendum og erlendum, um leigu á aðstöðu undir verslunar- og veitingarekstur í Flugstöð Leifs Eiríkssonar vorið 2014. Aðrir þátttakendur voru ma. Icelandair, Joe & the Juice, SSP frá Bretlandi auk fjölda annarra fyrirtækja. Lagardère og fleiri aðilar voru valdir sem rekstraraðilar í þeirri samkeppni og hefur nú rekið veitinga- og kaffihús á flugstöðinni í rúmlega tvö ár.
Lagardère eins og hin fyrirtækin, sem öll eru í  samkeppnisrekstri, skrifuðu undir ákvæði um trúnaðarskyldu við Isavia um meðferð viðskipta- og fjárhagsupplýsinga. Isavia hefur þó engu að síður nú þegar afhent mikið magn viðkvæmra trúnaðargagna um fyrirtækin til keppinautar þeirra þar sem þó var, eftir tilmæli frá Samkeppniseftirlitinu, strikað yfir viðkvæmustu upplýsingarnar. Samkeppniseftirlitið ályktaði að afhending þeirra kynni að fela í sér röskun á samkeppni. Öll þau gögn, sem þegar er búið að afhenda, ættu að nægja til að varpa ljósi á hvað eina sem  gerðist í aðdraganda og eftir forvalið árið 2014, en ekkert hefur komið fram um að eitthvað misjafnt, óeðlilegt eða ólöglegt hafi átt sér stað. Nú er svo komið að úrskurðarnefnd um upplýsingamál hefur kveðið á um að Isavia skuli ganga enn lengra og afhenda þriðja aðila trúnaðargögn um fjárhag og rekstur Lagardère í heild sinni, án yfirstrikanna.

Lagardère er alþjóðlegt fyrirtæki og skráð á hlutabréfamarkað í Frakklandi, en alla jafna gilda strangari kröfur um upplýsingavernd hjá skráðum félögum en óskráðum. Fyrirtækið hefur mikla reynslu af rekstri veitinga- og verslunarþjónustu á flugvöllum, lestarstöðvum og öðrum fjölförnum ferðamannastöðum og hefur keppt um þá aðstöðu um allan heim. Þær upplýsingar sem Isavia fyrirhugar nú að afhenda eru taldar einar viðkvæmustu trúnaðarupplýsingar sem fyrirtækið býr yfir, eða fjárhagsupplýsingar og viðskiptaskilmálar um allar rekstrareiningar fyrirtækisins á Flugvelli Leifs Eiríkssonar. Telur Lagardère einsýnt að með afhendingu þeirra gagna sé Isavia að brjóta trúnaðarskyldu sína við Lagardère og á lögvörðum rétti fyrirtækisins samkvæmt samkeppnislögum nr. 44/2005. Skv. 10 gr. samkeppnislaga er samkeppnisaðilum óheimilt að skiptast á upplýsingum og telur Lagardère að sú afhending upplýsinga sem Isavia þarf að framkvæma skv. úrskurðinum feli í sér brot á umræddri grein.

Fyrirhuguð afhending trúnaðargagna í heild sinni, af hálfu Isavia til samkeppnisaðila Lagardère, er til þess fallin að valda óafturkræfu og ómetanlegu tjóni fyrir starfsemi Lagardère. Því hefur beiðni um lögbann á Isavia um afhendingu þessara gagna verið lögð fram.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024