Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

  • Laga og lengja sjóvarnir
  • Laga og lengja sjóvarnir
Föstudagur 26. febrúar 2016 kl. 16:58

Laga og lengja sjóvarnir

Byggingarfulltrúi Garðs hefur gefið út framkvæmdaleyfi vegna sjóvarna í landi Sveitarfélagsins Garðs. Nú standa fyrir dyrum framkvæmdir á vegum Vegagerðarinnar um lagfæringar og viðbætur á sjóvarnargarði í landi Garðs.

Um er að ræða þrjú svæði. Það fyrsta er 300 metra kafli við golfvöll í Leiru þar sem framlengd verður eldri sjóvörn, nánar tiltekið meðfram 4. braut Hólmsvallar. Annað svæðið er við Lambastaðavör en þar á að laga þrjá staði samtals um 350 metra. Þriðja og síðasta svæðið er við Garðskagavita, en þar á að endurbyggja sjóvarnir á 85 metra kafla.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024