Laga bryggjuna í Garði
Nú loks er verið að laga bryggjuna í Garðinum en hún hefur verið hreint og beint hættuleg eins og hún hefur verið allt of lengi.
Umferð á bryggjunni hefur aukist til muna undanfarið bæði vegna makrílgengdar og kvikmyndafólks en það færist sífellt í vöxt að kvikmyndafólk komið í Garðinn og taki upp bíómyndir hér.
Oftar en ekki er þá notast við bryggjuna til að taka upp atriði sem eiga að gerast á sjó, en auk þess hefur makrílgengdin við landið orsakað aukna umgengni á bryggjur landsins almennt, en mikið veiðist af honum af bryggjunni í Garði.
Unnið var af kappi, í góða veðrinu í vikunni við að fylla í helstu sprungurnar sem krakkar úr vinnuskólanum höfðu þrifið og undirbúið undir steypuvinnuna.