Læsi betra á Reykjanesinu
Reykjanesbær og Reykjanesið í heild, koma afar vel út úr sérstakri læsis-skimun sem lögð er fyrir nemendur annars bekkjar í grunnskólum í Reykjanesbæ. Þegar tölur frá síðastliðnu vori eru skoðaðar kemur í ljós að 69,44%% nemenda í öðrum bekk í Reykjanesbæ geta lesið sér til gagns og er meðalárangur þeirra 72,55%. Árangur hefur verið stigvaxandi síðastliðin ár.
Nú hefur Reykjavíkurborg birt niðurstöður sínar úr sömu Læsis-skimun frá síðasta vori. Þar kemur fram að 63% nemenda í Reykjavík geta lesið sér til gagns og er meðalárangur þeirra 70%. Aðspurður þakkar Gylfi Jón Gylfason fræðslustjóri Reykjanesbæjar góðan árangur gæðakennslu, sem meðal annars felst í markvissum vinnubrögðum kennara, samvinnu kennara milli skóla og skólastiga og góðri samvinnu milli heimilis og skóla. Góð lestrarkennsla í leik- og grunnskólum á Reykjanesbæ síðustu árin er greinilega farin að bera árangur, raunar ekki bara í Reykjanesbæ því framfarir eru einnig í Garði og Sandgerði og er árangur barna á Reykjanesi öllu einnig yfir meðaltali Reykjavíkur.
Mikil samvinna er milli skóla í Reykjanesbæ, Garði og Sandgerði. Skólarnir á Reykjanesi fara þó ólíkar leiðir í lestrarkennslunni en markvisst er unnið að því að bæta lestrarfærni nemenda í þeim öllum.