Læknar vonlitlir um lausn
Læknar eru svartsýnir á að lausn læknadeilunnar á Suðurnesjum sé í sjónmáli. Læknar sem Fréttastofa Útvarps talaði við í gær, mánudag, segja að heilbrigðisráðherra hafi tvisvar áður lagt sömu hugmyndir fyrir lækna sem hafi jafnoft hafnað þeim.Elsa B. Friðfinnsdóttir, aðstoðarmaður ráðherra, reiknar hins vegar með að læknar svari tillögum ráðherra í dag, þriðjudag. Deilan hefur staðið í nokkurn tíma og snýst ágreiningurinn einkum um hvernig stjórna skuli heilsugæslunni.
Læknar vilja að heilsugæslan í Reykjavík fari með yfirstjórnina en ráðherra vill skipa sérstaka þriggja manna framkvæmdastjórn, sem í sætu framkvæmdastjóri heilsugæslunnar í Reykjavík, forstöðumaður heilbrigðistofnunar Suðurnesja og fulltrúi heilbrigðisráðuneytis.