Lækka skuldir Reykjanesbæjar með sölu eigna
Í fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar er gert ráð fyrir að skuldabréf og aðrar peningalegar eignir sem ekki tilheyra lögbundnum rekstri sveitarfélagsins, verði nýttar til að lækka skuldir Reykjanesbæjar, segir í bókun Sjálfstæðisflokks, meirihluta bæjarstjórnar Reykjanesbæjar á bæjarstjórnarfundi í gær.
Í bókuninni segir:
„Samkvæmt ársreikningi ársins 2010, sem samþykktur hefur verið í bæjarstjórn, var EBITDA bæjarsjóðs jákvæð um 351 milljón kr. og samstæðu jákvæð um 2,1 milljarð kr. Í áætlun ársins 2011 er gert ráð fyrir 466 milljón kr. jákvæðri Ebitdu og 2,7 milljörðum hjá samstæðu.
Í þriggja ára áætlun 2012-2014 er gert ráð fyrir áframhaldandi jákvæðri rekstrarniðurstöðu þótt gætt sé varfærnissjónarmiða um tekjuaukningu. Í áætluninni er t.d. vart getið áhrifa af aukinni atvinnusköpun, s.s kísilveri og álveri í Helguvík, gagnaveri og heilsuferðamennsku á Ásbrú og jarðauðlindagarði á Reykjanesi.
Í áætluninni er gert ráð fyrir að skuldabréf og aðrar peningalegar eignir sem ekki tilheyra lögbundnum rekstri sveitarfélagsins, verði nýttar til að lækka skuldir Reykjanesbæjar. Nú þegar hafa 2,5 milljarðar af skuldabréfi sem gefið var út árið 2008, á gjalddaga 2018, verið greiddir. Lán frá norræna fjárfestingarbankanum var greitt upp í fyrra og stefnt er að uppgreiðslu á láni írska bankans Depfa innan tveggja ára.
Reykjanesbær áætlar að svonefnt skuldahlutfall bæjarsjóðs lækki verulega á næstu þremur árum, með því að nýta rekstrarafgang og peningalegar eignir til að lækka skuldir. Gert er ráð fyrir að skuldahlutfall samstæðu verði komið í 207 % árið 2014. Skuldahlutfall mælir heildaskuldir á móti rekstrartekjum eins árs. Þessi jákvæða niðurstaða er greinilega ekki fagnaðarefni fyrir minnihlutann, fulltrúa Samfylkingar og Framsóknar. Þessir aðilar hafa ekki tekið þátt í þeirri varnarvinnu sem unnin hefur verið á undanförnum árum við styrkingu stoða atvinnulífsins í stórum áföllum sem sveitarfélagið hefur orðið fyrir. Fjárfestingar í uppbyggingarvinnu hafa verið dýrari vegna alkunnra tafa sem hafa orðið á þessari uppbyggingu.
Bæjarfulltrúarnir Árni Sigfússon, Gunnar Þórarinsson, Böðvar Jónsson, Magnea Guðmundsdóttir, Einar Þ. Magnússon, Baldur Þ. Guðmundsson og Björk Þorsteinsdóttir undirrituðu bókunina.
Ársreikningur bæjarsjóðs og stofnana hans var samþykktur á fundi bæjarstjórnar í gær með öllum greiddum atkvæðum.