Mánudagur 4. apríl 2005 kl. 11:39
Lækka mánaðargreiðslur í íbúðum aldraðra
Á fundi Bæjarráðs Garðs í síðustu viku var samþykkt tilllaga frá Bygginganefnd íbúða aldraðra um að mánaðargreiðslur í íbúðum aldraðra við Melteig lækki.
Mánaðargreiðslur munu lækka um kr. 19.000 á mánuði frá og með 1.maí n.k.
Þrjár íbúðir eru nú lausar við Melteig.