Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Lækka laun unglinga í vinnuskóla Grindavíkur
Sunnudagur 13. mars 2011 kl. 13:18

Lækka laun unglinga í vinnuskóla Grindavíkur

Íþrótta- og æskulýðsnefnd Grindavíkur segir að miðað við þá upphæð sem sett er í Vinnuskóla Grindavíkur fyrir sumarið 2011 er ljóst að lækka þarf laun hjá unglingum og draga úr vinnu til að geta boðið öllum unglingum 14 - 17 ára einhverja vinnu í sumar.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024


Laun unglinga í Vinnuskóla Grindvíkur hafa verið einna hæstu í samanburði við önnur sveitarfélög og þrátt fyrir lækkun eru launin samt hærri en hjá flestum öðrum sveitarfélögum. Íþrótta- og æskulýðsnefnd leggur til við bæjarráð að skipulag vinnuskóla og laun verði með eftirfarandi hætti:


14 ára: vinna í 3 vikur hálfan daginn. Laun: 405 kr. pr. klst. m/ orlofi.
15 ára: vinna í 5 vikur þ.a. hálfan daginn í tvær vikur. Laun: 495 kr. pr. klst. m/ orlofi.
16 ára: vinna í 5 vikur. Laun: 585 kr. pr. klst. m/ orlofi.
17 ára: vinna í 8 vikur, þ.a. hálfan daginn í tvær vikur. Laun: 900 kr. pr. klst. m/ orlofi.


Fyrirkomulag á vinnustundum gæti breyst en það færi eftir aðsókn hversu miklar tilfæringar yrði hægt að gera.