Lægstu taxtar Flóabandalagsins hækka um 32,5%
Stefnt er að því að ljúka gerð kjarasamninga fyrir vikulok hjá Flóabandalaginu en Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis er aðili að því.
Megináherslur í útlínum kjarasamnings Flóabandalagsins og viðsemjenda er eftirfarandi:
Launahækkanir
Hvað varðar launahækkanir er stuðst við taxtahækkanir og launaþróunartryggingu árin 2015 og 2016 en taxta- og prósentuhækkanir árin 2017 og 2018.
1. maí 2015
• Launataxtar hækka um kr. 25.000
• Launaþróunartrygging annarra en þeirra sem taka laun skv. töxtum er 7,2% fyrir laun að upphæð 300 þúsund krónur eða lægri laun en fer svo stiglækkandi með hærri tekjum. Launaþróunartryggingin verður aldrei lægri en 3%.
1. maí 2016
• Launataxtar hækka um kr. 15.000
• Launaþróunartrygging er 5,5%. Viðmiðunartímabil er 1. júní 2015 til 30. apríl 2016.
1. maí 2017
• Launataxtar hækka um 4,5%
• Almenn hækkun er 3%
1. maí 2018
• Launataxtar hækka um 3%
• Almenn hækkun er 2% m.v. átta mánuði
300 þúsund króna lágmarkstekjutrygging
Lægstu taxtar Flóabandalagsins hækka um 32,5% á samningstímanum. Samið er um árlega hækkun lágmarkstekjutryggingar sem er það lágmark sem greiða verður starfsmönnum. Í dag er lágmarkstekjutrygging 214 þúsund krónur en verður 245 þúsund krónur við undirritun samningsins og endar í kr. 300 þúsund.
Opnunarákvæði ef forsendur kjarasamningsins standast ekki.
Samningsaðilar vinna nú að útfærslu ýmissa annarra ákvæða kjarasamningsins en mikilvægast af þeim eru opnunarákvæði ef forsendur kjarasamningsins standast ekki.
Auk þess er unnið að sameiginlegum málum með Alþýðusambandi Íslands og sérkjarasamningum félaganna sem tengjast frágangi aðalkjarasamnings.