Lægir í dag og léttir til
Norðan 8-15 m/s, lægir í dag og léttir til við Faxaflóa. Hiti 2 til 7 stig, en víða næturfrost.
Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
Norðan 8-13 m/s og skýjað. Léttir til í dag og lægir smám saman. Hiti 1 til 6 stig, en vægt frost í nótt.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á föstudag: Norðvestan 5-10 m/s austast, annars hægari vindur. Skýjað með köflum og smáskúrir V-lands. Hiti 1 til 6 stig, en víða vægt frost N- og A-lands. Vaxandi suðaustanátt með rigningu eða slyddu SV-til um kvöldið.
Á laugardag: Suðaustan 10-20 m/s, hvassast S- og V-lands. Rigning, en slydda eða snjókoma um tíma NA-til. Mun hægari og rigning eða skúrir síðdegis. Hlýnandi í bili.
Á sunnudag: Vestlæg átt og skúrir eða slydduél, en þurrt á A-verðu landinu. Hiti 2 til 10 stig, mildast SA-lands.
Á mánudag og þriðjudag: Norðanátt og úrkomusamt á N-verðu landinu, en þurrt S-lands. Svalt í veðri.
Á miðvikudag: Útlit fyrir suðaustanátt og hlýnandi veður.