Bygg
Bygg

Fréttir

Lá við slysi í sprengingu við Reykjanesbraut
Miðvikudagur 27. desember 2006 kl. 15:33

Lá við slysi í sprengingu við Reykjanesbraut

Litlu mátti muna að slys hlytist af þegar sprengt var við framkvæmdir við mislæg gatnamót á mótum Reykjanesbrautar og Vogaafleggjara í síðustu viku.

Grjót kastaðist þá frá sprengingunni inn á veginn og einn vegfarandi sagði í samtali við Víkurfréttir að eitt grjótið haf lent skammt frá bifreið hans.

Lögregla kom á staðinn og áminnti verktakann, sem tók á sig ábyrgðina á atvikinu og lofaði að slíkt myndi ekki henda aftur.

Mynd úr safni Víkurfrétta

Bílakjarninn
Bílakjarninn