Kynntu bæjarstjórn niðurstöður ungmennaþings
Ungmennaráð í Vogum fór á fund bæjarstjórnar sveitarfélagsins á dögunum. Þar kynntu ungmennin hugmyndir sínar og áttu góðar samræður við bæjarstjórn. Ungmennaþing var haldið í fyrsta sinn í Vogum 1. nóvember síðastliðinn. Tilgangur þingsins var að fá hugmyndir frá ungu fólki um málefni sem þau varða. Þingið er vettvangur ungmenna til að koma saman og ræða ýmis mál, hvað má gera betur og hverju má breyta.
Ungmennin hittust einu sinni í mánuði og fóru í verkefnavinnu þar sem margar hugmyndir komu fram, til dæmis tengdar samgöngumálum, leikaðstöðu barna og unglinga, fræðslu fyrir ungmenni og fleira. Vinnan hjá ungmennaráði mun halda áfram. Á vef sveitarfélagsins Voga segir að farið verði með tillögur á viðeigandi staði þar sem krakkarnir kynna sínar hugmyndir áfram. „Verður gaman að fylgjast með þessum krökkum áfram enda mjög mikilvægt að raddir þessa hóps íbúa heyrist,“ segir á vef sveitarfélagsins.