Fréttir

Kynningarfundur um innleiðingu gæðastjórnunarkerfa
Mannvirkjagerði í Grindavík.
Mánudagur 22. september 2014 kl. 09:00

Kynningarfundur um innleiðingu gæðastjórnunarkerfa

- í byggingariðnaði verður haldinn í Reykjanesbæ 29. september.

 

Mannvirkjastofnun og Samtök Iðnaðarins standa fyrir kynningarfundum um innleiðingu gæðastjórnunarkerfa í byggingariðnaði í september og október.
 
Fundir verða haldnir á eftirtöldum stöðum:
 
Egilsstaðir 22. september kl. 13:00 Hótel Hérað
Akureyri 23. september kl. 09:00 Hótel KEA
Sauðárkrókur 23. september kl. 14:00 Hótel Mælifell
Ísafjörður 24. september kl. 13:00 Hótel Ísafjörður
Borgarnes 25. september kl. 09:30 Hótel Borgarnes
Stykkishólmur 25. september kl. 15:00 Hótel Stykkishólmur
Reykjanesbær 29. september kl. 15:00 Flughótel 
Hella 30. september kl. 15:00 Árhús, gistihús
Reykjavík 9. október kl. 15:00 Grand Hótel - Hvammur
Mannvirkjastofnun vekur athygli á að allir sem skrá sig á byggingarleyfisskyld verk sem hönnuðir, hönnunarstjórar, iðnmeistarar eða byggingarstjórar eftir 1. janúar 2015 skulu vera með gæðastjórnunarkerfi sem samþykkt er af stofnuninni.
 
Krafa um gæðastjórnunarkerfi byggir á ákvæðum 24. gr., 31. gr. og 32. gr. laga um mannvirki en samkvæmt 7. tölulið ákvæða til bráðabirgða í lögunum er veittur frestur til 1. janúar 2015 til að uppfylla ákvæðin. Nánari upplýsingar má m.a. nálgast á vef Mannvirkjastofnunar hér
 
Allir aðilar sem tengjast mannvirkjagerð eru velkomnir.
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024