Kynningarfundur fyrir hönnuði
- vegna Hönnunarmars 2015
Hönnuðum á Suðurnesjum er boðið á kynningarfund í Eldey frumkvöðlasetri á Ásbrú, Grænásbraut 506, föstudaginn 27. febrúar kl. 12 – 13:00.
Kynnt verður þátttaka hönnuða í Hönnunarmars 2015 en enn er hægt að sækja um þátttöku og þá verður sagt frá Maris, hönnunarklasa Suðurnesja og verkefnum hans sem miða að því að efla nýsköpun í hönnun.
Boðið verður upp á létt snarl í hádeginu og gott spjall um hönnun á Suðurnesjum.