Kynning á nýrri frummatsskýrslu um endurbætur kísilvers í Helguvík
Stakksberg undirbýr endurbætur á 1. áfanga kísilverksmiðjunar. Sækir um byggingarleyfi fyrir nýtt mannvirki að lokinni kynningu á umhvefisáhrifum
Stakksberg undirbýr endurbætur á 1. áfanga kísilverksmiðjunnar í Helguvík með allt að 25.000 tonna ársframleiðslu og stækkun verksmiðjunnar í áföngum 2-4 í framleiðslugetu á allt að 100.000 tonnum af kísli á ári. Endurbætur fela í sér framkvæmdir á lóð, breytingar á núverandi byggingum og nýbyggingar, uppsetningu á 52 metra háum skorsteini til að bæta dreifingu útblásturs og varða einnig meðhöndlun hráefna, ljósbogaofn og afsogskerfi verksmiðjunnar. Gert er ráð fyrir að 70 til 90 bein störf verði til við uppbyggingu fyrsta áfanga en þau verði fleiri við byggingu áfanga 2 til 4 auk enn fleiri afleiddra starfa sem verði til þegar starfsemin verði komin í gang. Þetta kemur fram í frummatsskýrslu um endurbætur á kísilsverksmiðju Stakksbergs í Helguvík, áður United Silicon, sem Skipulagsstofnun hefur birt.
Í fréttatilkynningu frá Skipulagsstofnun kemur fram að föstudaginn 8. maí 2020 hefst kynning á frummatsskýrslu um endurbætur á kísilverksmiðju Stakksberg í Helguvík, Reykjanesbæ.
Stakksberg ehf. er endurbætt verksmiðja sem áður var rekin undir nafni United Silicon.
Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 8. maí 2020 til 26. júní 2020 á eftirtöldum stöðum: Á bæjarskrifstofu Reykjanesbæjar og í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun. Frummatsskýrslan er aðgengileg hér og á vefsíðu stofnunarinnar: www. skipulag.is.
Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 26. júní 2020 til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á [email protected] segir í tilkynningu stofnunarinnar.
Gert er ráð fyrir að mati á umhverfisáhrifum kísilverksmiðjunnar verði lokið um mitt ár 2020. Í framhaldi af því verður sótt um byggingarleyfi fyrir ný mannvirki og endurskoðun á starfsleyfi auglýst.
Í frummatsskýrslunni segir meðal annars:
Aðrar framkvæmdir snúa að aukinni hagkvæmni, bættum framleiðsluvörum og aðstöðu starfsmanna. Seinni áfangar fela í sér fjölgun ljósbogaofna í allt að fjóra með stækkun ofnhúss og nýjum mannvirkjum. Einnig er fjallað um aðra framkvæmdakosti. Fjallað er um og lagt mat á áhrif á umhverfisþættina loftgæði, vatnafar (grunnvatn og hiti strandsjávar), fuglar, lífríki fjöru og strandsjávar, samfélag, heilsu, hljóðvist og ásýnd. Áhrif eru metin frá því að vera nokkuð neikvæð á loftgæði, grunnvatn við fullbyggða verksmiðju og ásýnd yfir í nokkuð jákvæð á atvinnustig samfélags á framkvæmdatíma og talsvert jákvæð á samfélag á rekstrartíma. Áhrif á aðra umhverfisþætti eru metin óveruleg. Að teknu tilliti til mótvægisaðgerða, sem fyrst og fremst felast í reisingu skorsteins eftir síuvirki auk ýmissa endurbóta sem eiga að auka rekstraröryggi og tryggja rétt viðbrögð, er það mat framkvæmdaraðila að ekki sé líklegt að kísilverksmiðjan í Helguvík hafi umtalsverð umhverfisáhrif í för með sér.
Tilgangur og markmið
Markmiðið með framkvæmdum við endurbætur á kísilverksmiðjunni í Helguvík er að lágmarka umhverfisáhrif vegna reksturs verksmiðjunnar og stuðla að því að starfsemin megi verða í sátt við íbúa svæðisins. Tilgangur framkvæmdanna er að gera allar þær úrbætur, sem nauðsynlegar eru til að uppfylla skilyrði Umhverfisstofnunar um breytingar og viðbætur á búnaði fyrir endurræsingu verksmiðjunnar, bæta gæði framleiðsluferilsins og vinnuumhverfi starfsmanna.
Stakksberg óskaði eftir því við sveitarfélagið að deiliskipulaginu verði breytt til samræmis við útgefin byggingarleyfi og byggingar sem þegar hafa verið byggðar. Áformaðar endurbætur á kísilverksmiðjunni rúmast innan gildandi deiliskipulags og kalla því einar og sér ekki á breytingu á skipulaginu.
Umfang framkvæmda
Í 1. áfanga verður unnið að úrbótaframkvæmdum svo unnt verði að endurræsa núverandi ljósbogaofn til framleiðslu á 25.000 tonnum á ári af kísli. Endurbæturnar varða m.a. lóð verksmiðjunnar, breytingar á núverandi byggingum og nýbyggingar, uppsetningu á 52 m háum skorstein, meðhöndlun hráefna, ljósbogaofn og afsogskerfi verksmiðjunnar. Einnig verður farið í framkvæmdir til að auka hagkvæmni, bæta framleiðsluvörur og aðstöðu starfsmanna. Ekki er ljóst hvenær verður ráðist í uppbyggingu seinni áfanga sem tengjast stækkun verksmiðjunnar í framleiðslugetu á allt að 100.000 tonnum af kísli á ári með ofnum 2 til 4. Mun það ráðast af þáttum eins og markaðsaðstæðum og möguleikum á fjármögnun. Þegar framkvæmdir við 1. áfanga verksmiðjunnar standa sem hæst munu allt að 70-90 manns starfa á svæði verksmiðjunnar og allt að 120 manns við hvern af seinni áföngum. Þegar núverandi ofn verður endurræstur er gert ráð fyrir um 70-80 starfsmönnum. Gert er ráð fyrir að um 190 manns verði starfandi í verksmiðjunni þegar fjórir ofnar verða komnir í rekstur.
Samráðsgátt
Stakksberg hefur opnað samráðsgátt vegna vinnslu frummatsskýrslu umhverfismats kísilverksmiðju fyrirtækisins í Helguvík. Með samráðsgáttinni vill Stakksberg stuðla að auknu samráði við almenning, umfram það sem lög og reglur gera ráð fyrir, og er þetta í fyrsta sinn sem framkvæmdaraðili stendur fyrir samráði með þessum hætti á meðan á vinnslu frummatsskýrslu stendur. Með auknu samráði vonast Stakksberg til þess að fram komi athugasemdir frá almenningi sem stuðli að betri og vandaðri frummatsskýrslu.
Samráðsgáttin er aðgengileg á slóðinni www.samrad.stakksberg.is.
Endurbætur stórbæta loftgæði
Í fréttatilkynningu frá Stakksbergi kemur fram að framkvæmdir vegna endurbóta á kísilverksmiðju Stakksbergs í Helguvík feli í sér 4,5-5 milljarða króna fjárfestingu.
„Við hönnun endurbóta á kísilverksmiðjunni er lögð sérstök áhersla á að lágmarka lyktaráhrif enda ljóst að íbúar Reykjanesbæjar hafa af þeim miklar áhyggjur. Áhyggjurnar komu meðal annars fram í samráði sem Stakksberg hafði við almenning við vinnslu frummatsskýrslunnar.
Ráðgjafarfyrirtækið Vatnaskil hefur metið áhrif þessara breytinga á loftgæði með viðurkenndu loftdreifilíkani. Niðurstöður líkansins sýna að styrkur mengunarefna verður í lágmarki og undir öllum viðmiðunarmörkum. Að auki koma endurbæturnar til með að lágmarka lyktaráhrif. Sérstök skýrsla Vatnaskila um loftdreifingu fylgir með frummatsskýrslu sem viðauki og er öllum aðgengileg á kynningarvefnum.
Endurhönnuð verksmiðjan uppfyllir allar kröfur og skilyrði laga og reglugerða um umhverfismál. Um er að ræða tæknilegar lausnir sem unnið hefur verið að í nokkurn tíma með sérfræðingum á þessu sviði og eru í fullu samræmi við skilyrði Umhverfisstofnunar. Endurbæturnar eru í samræmi við gildandi deiliskipulag í Helguvík. Síðustu breytingar á því voru samþykktar í íbúakosningu árið 2015, þar sem meðal annars var veitt heimild fyrir 52 m háum reykháfum á lóð Stakksbergs,“ segir m.a. í frétt frá Stakksbergi.