Kynna nýjan skóla í Innri Njarðvík síðdegis
Kynning á skóla í Innri Njarðvík verður haldin í Akurskóla í dag, mánudag, kl. 17:30. Helgi Arnarson, sviðsstjóri fræðslusviðs Reykjanesbæjar, mun kynna hvernig staðið var að undirbúningi hönanunar og fulltrúar arkitektastofunnar Arkís munu kynna tillöguna. Þá mun fulltrúi umhverfissviðs Reykjanesbæjar kynna breytingar á lóð og skipulagi. Í lokin gefst gestum færi á að leggja fram fyrirspurnir. Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri, verður fundarstjóri.
Fimm tillögur að hönnun byggingarinnar bárust Reykjanesbæ. Samdóma álit bygginganefndar var að velja tillögu Arkís til að vinna áfram með. Í tilkynningu frá Reykjanesbæ segir að í tillögu Arkís séu öll kennslurými mjög vel útfærð. Einnig sé hugsað vel fyrir aðgengi og aðgangsstýringu, sér í lagi í tengslum við rýmin í hjarta byggingarinnar, svo sem félagsmiðstöð, tónlistarrými, fjölnota sal og matsal. Mat byggingarnefndar var að góð tenging væri á milli leikskóla, frístundar og yngsta stigs grunnskólans.
Tillagan, þarfagreining og kröfulýsing verða svo sett á vef Reykjanesbæjar til frekari kynningar.