Kvótinn.is fjallar um sjávarútveg
Nýr vefmiðill, kvótinn.is, hefur hafið göngu á netinu. Ritstjóri vefjarins er Hjörtur Gíslason einn reyndasti sjávarútvegsblaðamaður landsins. Að sögn Hjartar verður vefmiðillinn með alls kyns fréttir af sjónum og landvinnslunni og fylgist náið með allri þróun, tækni og tækjabúnaðar, er tengjast vinnslu og veiðum.
„Við verðum líka með mannlegar fréttir til dæmis með því að spjalla við fólk á sjónum og í landi því svo sannarlega er á vísan að róa þegar sótt er í sjávarútveginn eftir fréttum. Hann er óþrjótandi uppspretta frétta og frásagna af margvíslegu tagi, enda undirstöðuatvinnugrein frá örófi alda. Fólk og fiskur verður viðfangsefni okkar og við munum jafnframt leitast við að efla þekkingu fóks á undirstöðuatvinnuveginum með vandaðri og óvilhallri umfjöllun,“ segir Hjörtur.
Framkvæmdastjóri og útgefandi kvótinn.is er Ólafur M. Jóhannesson.