Kvikuþrýstingur áfram að aukast og land rís
Um 300 skjálftar frá því á mánudaginn
Fjöldi jarðskjálfta sem mælist á Sundhnúksgígaröðinni heldur áfram að aukast. Allt eru þetta smáskjálftar undir M2,0 að stærð og meiri hluti þeirra undir M1,0 að stærð. Í þessari viku, frá því á mánudaginn 5. ágúst, hafa hátt í þrjú hundruð jarðskjálftar mælst á svæðinu. Fjöldi skjálfta hefur farið vaxandi undanfarnar vikur, segir Veðurstofa Íslands í tilkynningu.
Aflögunargögn og líkanreikningar sýna að landris og kvikusöfnun undir Svartsengi er svipuð og síðustu daga. Þessi gögn sýna merki um það að kvikuþrýstingur sé áfram að aukast og er þetta svipuð þróun eins og vikurnar fyrir undanfarin kvikuhlaup og eldgos.
