HSS
HSS

Fréttir

Kvikumagnið að ná svipuðu rúmmáli og fyrir síðasta gos
Ljósmynd: Veðurstofa Íslands
Mánudagur 5. febrúar 2024 kl. 11:01

Kvikumagnið að ná svipuðu rúmmáli og fyrir síðasta gos

Líkön sem byggja á GPS gögnum síðan 1. febrúar sl. sýna að nú hafa um það bil 6,5 milljón rúmmetrar flætt inn í kvikuhólfið kennt við Svartsengi. Miða við þetta mat er líklegt að kvikumagnið nái svipuðu rúmmáli og fyrir eldgosið 14. janúar á næstu tveimur vikum og jafnvel dögum. Þetta þýðir að líkurnar á kvikuhlaupi og eldgosi hafi aukist, segir á vef Veðurstofu Íslands.

Síðasta sólarhring hafa verið þónokkrir jarðskjálftar skammt úti fyrir Reykjanestá og einnig á svæðinu við Krýsuvík og Fagradalsfjall. Þá hafa einnig orðið skjálftar í og við kvikuganginn norðan Grindavíkur.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Land hefur haldið áfram að rísa og GPS-stöðin Svartsengi er í dag í hæstu hæðum og aldrei áður sýnt meira landris. GPS-stöð kennd við Norðurljósaveg virðist hins vegar hætt að rísa en er eins og Svartsengisstöðin í methæðum. Land hefur að meðaltali verið að rísa um 8 mm á sólarhring á helstu mælistöðvum.