Bygg
Bygg

Fréttir

Kvikugas mælist úr borholu
Fimmtudagur 16. nóvember 2023 kl. 18:01

Kvikugas mælist úr borholu

Í dag mældist kvikugas, brennisteinsdíoxíð (SO2), upp úr borholu í Svartsengi sem staðsett er rétt norðan Þorbjarnar. Borholan er skáboruð í austur undir Grindavíkurveg og nær inn í jarðskorpuna í átt að Sundhnúksgígum. Endi borholunnar teygir sig því nálægt þeim stað í jarðskorpunni þar sem kvikugangurinn er talinn vera.

Frekari mælingar verða gerðar á morgun en það að kvikugas mælist úr borholunni er staðfesting á að kvika sé til staðar norðan Hagafells, líkt og líkön hafa gefið til kynna, segir í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.

Kort sem sýnir umfang sigdalsins sem myndaðist í tengslum við kvikuganginn. Grænu punktarnir tákna GPS mælistöðvar.

 

Bílakjarninn
Bílakjarninn