Bygg
Bygg

Fréttir

Miðvikudagur 19. desember 2001 kl. 10:40

Kviknaði í bíl við heimahús

Það hefur verið nóg að gera hjá Brunavörnum Suðurnesja í dag. Í morgun bárust tilkynningar um fjora sjúkraflutninga og eitt brunaútkall. Kviknað hafði í bíl við heimahús í Keflavík.
Að sögn Sigurgísla Ketilssonar, vaktstjóra kviknaði í mælaborði bílsins og er hann ónýtur. Bíllinn hafði nýverið verið færður af bílasölu en íbúi hússins hafði ætlað að festa kaup á bílnum. Upptök eldsins eru ókunn en að sögn Sigurgísla er líklegt að rafmagn hafi átt þátt í brunanum. Að undanförnu hefur verið frekar rólegt hjá slökkviliðinu og hefur bruni á skreytingu minnkað stórlega en þó eru alltaf dæmi um slíkann bruna. „Það virðist sem þessar auglýsingar um kertaskreytinga hafi náð til fólks en það virðist vera varkárara en oft áður“, segir Sigurgísli.
Bílakjarninn
Bílakjarninn