Bygg
Bygg

Fréttir

Kvenmannsleysi hrjáir karlana í Olískaffi í Grindavík
Þriðjudagur 1. febrúar 2005 kl. 12:07

Kvenmannsleysi hrjáir karlana í Olískaffi í Grindavík

Það eru ýmsir staðir sem menn hittast á til að ræða heimsmálin og er einn slíkur staður höfuðstöðvar Olís í Grindavík eða Olískaffi.  Þar koma saman iðnaðarmenn, sjómenn verkamenn, útgerðarmenn, gárungar og allir þeir sem gaman hafa af líflegum umræðum og kemur stundum fyrir að Olískaffi fyllist nánast út úr dyrum.

Þegar blaðamaður VF átti leið í Olís einn morguninn voru fjörlegar umræður eins og oft gerist þegar margir koma saman.  "Voru þeir að fá hann í gær" var einn sjómaðurinn spurður.  " Þetta var nú púra víti" fullyrti einn knattspyrnusérfræðingurinn.  "Þeir stóðu sig nú ágætlega á leiknum í gær" sagði einn körfuboltaáhugamaðurinn.  "Blessaður fáðu þér í nefið" sagði einn gárungurinn og rétti fram tóbakshornið. Það fljúga margar sögur þegar svo fjölbreyttur hópur kemur saman og lenda sumir í því að vera kveðnir í kútinn á meðan aðrir geta alltaf svarað fyrir sig.  Eitt er það þó sem hrjáir þá Olís kaffikarla og það er kvennmannsleysið því einhverra hluta vegna leggur kvenfólk ekki leið sína í miklum mæli í Olískaffi. Það er gott að vita af slíkum stað þegar maður vill taka þátt í skemmtilegri umræðu eða fá nýjustu fréttir af bæjarmálunum og ekki skemmir fyrir að fá gott kaffi.

 

Texti og myndir: Þorsteinn G. Kristjánsson

Bílakjarninn
Bílakjarninn