HSS
HSS

Fréttir

Kvenfélagið styrkir Dagdvöl aldraðra
Miðvikudagur 29. desember 2004 kl. 12:14

Kvenfélagið styrkir Dagdvöl aldraðra

Kvenfélag Keflavíkur afhenti í gær Dagdvöl aldraðra fótaaðgerðartæki en tækið er bráðnauðsynlegt fyrir þá aldraða sem gista þar sækja þjónustu.

„Það kom beiðni frá Dagdvöl aldraðra og við urðum við henni eins og svo fjölmörgum öðrum,“ sagði Ragnhildur Ragnarsdóttir, formaður kvenfélagsins. Nú þegar tækið er til staðar getur fótaaðgerðarfræðingur mætt og aðstoðað aldraða í stað þess að aldraðir sæki þjónustuna niður í bæ.

„Kvenfélag Keflavíkur er fyrst og fremst líknarfélag sem við reynum að sinna eins og við getum,“ sagði Ragnhildur. Þær konur vinna undraverk um jólin en þá úthluta þær þremur fjölskyldum pening til matar og gjafainnkaupa fyrir jól.

Myndin: Frá afhendingunni í gær VF-mynd: Atli Már Gylfason

Bílakjarninn
Bílakjarninn