Kvenfélagið Gefn í Garði heldur jólaball
Kvenfélagið Gefn í Garði heldur sína árlegu jólatrésskemmtun næsta föstudag, 30. desember, frá klukkan 16:30 til 18:30 í Miðgarði Gerðaskóla í Garði. Að venju verður boðið upp á fjöruga tónlist, söng og gleði og veitingar að hætti kvenfélagskvenna. Þá er von á jólasveinum í heimsókn með glaðning í poka fyrir yngstu börnin. Aðgangur er ókeypis og vilja kvenfélagskonur hvetja Garðbúa og gesti þeirra til að mæta í jólaskapi með börnunum og hafa gaman saman.