Bygg
Bygg

Fréttir

Kveiktu í rusli við Myllubakkaskóla
Fimmtudagur 19. ágúst 2004 kl. 09:34

Kveiktu í rusli við Myllubakkaskóla

Laust eftir kl. 20:30 í gærkvöldi var lögregla og slökkvilið kallað að Myllubakkaskóla í Reykjanesbæ vegna elds í ruslagámi. Reyndist um lítinn eld að ræða og hafði hann kulnað áður en slökkvilið mætti á staðinn. Tveir ungir drengir eru grunaðir um að hafa borið eld að rusli sem var í gáminum.

Í gærdag fékk lögreglan í Keflavík tilkynningu um að brotist hafi verið inn í bifreið við Fitjabraut í Njarðvík. Þaðan var stolið tveimur hátölurum af gerðinni JBL 6x9 með svartri umgjörð.

Í gærkvöldi voru þrír ökumenn kærðir fyrir hraðakstur á Garðvegi. Sá sem hraðast ók mældist á 125 km hraða.
Þá voru tveir ökumenn óskráðra stórra bifhjóla voru kærðir fyrir að aka um á þeim í Garði og einn ökumaður var kærður fyrir að aka hægra megin fram úr bifreið á Víkurbraut í Grindavík.

Ekkert fréttnæmt bar til tíðinda á næturvaktinni.
Bílakjarninn
Bílakjarninn