Kveiknaði í pizzakössum á Pizzahúsinu
Lögreglunni á Suðurnesjum var tilkynnt að eldur væri laus í Pizzahúsinu í Keflavík á laugardagskvöld. Þegar lögreglumenn komu á vettvang barst mikill reykur frá staðnum.
Slökkviliðsmenn fóru inn í húsið og sáu þegar hvar eldurinn átti upptök sín. Starfsmaður Pizzahússins hafði kveikt upp í ofninum en ekki áttað sig á því að í honum voru tómir pizzakassar, sem kviknaði í.