Kveikja jólaljósin í Vogum á sunnudaginn
Kveikt verður á ljósunum á jólatrénu í Aragerði í Vogum nk. sunnudag, 7. desember kl. 17:00. Dagskránni var frestað í gær vegna veðurofsa.
Séra Kjartan Jónsson flytur hugvekju og kirkjukórinn mun syngja nokkur lög undir stjórn Franks K. Herlufsens. Einnig munu nemendur í 1. bekk Stóru-Vogaskóla syngja og heyrst hefur að einhverjir af
þeim jólasveinabræðrum muni kíkja við og jafnvel með glaðning í pokahorninu fyrir stillt börn.
Þess má geta að krakkarnir á leikskólanum Suðurvöllum bjuggu til skrautið sem prýðir jólatréð.
Krakkarnir í 10. bekk Stóru-Vogaskóla verða með heitt súkkulaði og annað góðgæti til sölu til styrktar lokaferðar þeirra.