HSS
HSS

Fréttir

Mánudagur 17. maí 2004 kl. 10:57

Kvartanir vegna sorphirðu

Að undanförnu hafa borist fjölmargar kvartanir um að sorptunnum í Reykjanesbæ hafi ekki verið skilað aftur á sinn stað eftir sorphirðu og jafnframt að lok margra tunna séu brotin.

Aron Jóhannsson, umhverfisfulltrúi sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja, sagði að þeir sem væru með tunnur með brotnu loki gætu haft samband við Kölku og vandamálinu yrði kippt í lag. Hinsvegar sagði Aron að samkvæmt útboðslýsingu sorphirðunnar væri verktakanum, Njarðtaki, skylt að skila tunnum á sama stað og ganga frá þeim eins og að var komið.
Bílakjarninn
Bílakjarninn