Bygg
Bygg

Fréttir

Kvaðst hafa keypt vegabréfið
Sunnudagur 15. febrúar 2015 kl. 10:30

Kvaðst hafa keypt vegabréfið

Lögreglan á Suðurnesjum handtók nýverið erlendan ferðamann sem ferðaðist á vegabréfi annars einstaklings. Maðurinn kom frá Svíþjóð og var á leið til Toronto þegar lögregla hafði afskipti af honum. Vegabréfið var gefið út í Svíþjóð og kvaðst maðurinn hafa keypt það af karlmanni þar í landi fyrir 5000 krónur sænskar.

Mál hans er komið í hefðbundið ferli.

Bílakjarninn
Bílakjarninn