Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Krýsuvíkurkirkja vígð á hvítasunnu
Miðvikudagur 1. júní 2022 kl. 10:26

Krýsuvíkurkirkja vígð á hvítasunnu

Sunnudaginn 5. júní á hvítasunnudag kl. 14:00 verður nýsmíðuð Krýsuvíkurkirkja vígð. Vinafélag Krýsuvíkurkirkju  hefur staðið fyrir byggingu kirkjunnar en öll smíði var  á vegum Iðnskólans í Hafnarfirði og síðar Tækniskólans og Þjóðminjasafns Íslands, sem lagði m.a. til þekkingu og trausta handleiðslu við smíðina. Sr. Kristján Valur Ingólfsson, biskup, mun vígja kirkjuna og sr. Hans Guðberg Alfreðsson, prófastur Kjalarnessprófastsdæmis, sr. Gunnþór Þ. Ingason, sem hafði umsjón með fyrri Krýsuvíkurkirkju sem helgidómi og sr. Jónína Ólafsdóttir, sóknarprestur Hafnarfjarðarkirkju, þjóna að vígslunni með biskupi.

Fyrri Krýsuvíkurkirkja  brann í ársbyrjun 2010, en hún var byggð 1857. Sú kirkja var að falli komin um miðja síðustu öld þegar Björn Jóhannesson forseti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar stóð fyrir endurreisn hennar. Krýsuvíkurkirkja var endurvígð á Hvítasunnudegi 1964 eftir endurreisnina. Það er því táknrænt að vígsla nýju kirkjunnar, sem er nákvæm eftirmynd þeirrar sem byggð var 1857, eigi sér stað á Hvítasunnu. Krýsuvíkurkirkja rúmar ekki nema 40 manns í sæti og þar af leiðandi verða eingöngu þeir sem hafa hlutverki að gegna í vígslumessunni auk  náinna velunnara kirkjunnar innan dyra. Öllum sem vilja gefst þó kostur á því að fylgjast með vígslumessunni utandyra, því að  hátölurum verður komið þar fyrir, og geta líka gengið inn í kirkjuna undir lok vígslunnar og neytt þar helgrar kærleiksmáltíðar og tekið þannig virkan þátt í vígslumessunni. Eftir vígsluna verður boðið til kirkjukaffis í Sveinshúsi í Krýsuvík.

Hægt verður jafnframt að fylgjast með steymisútsendingu frá vígslumessunni á stóru tjaldi í Strandbergi, safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju, og þar verður boðið upp á kirkjukaffi. Strandberg verður opnað vegna útsendingarinnar kl. 13.30. Ánægjulegt væri að sem flestir gætu fylgst með vígslu Krýsuvíkurkirkju, annaðhvort í Krýsuvík, eða  í Safnaðarheimilinu Strandbergi.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024