Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Kröfur til varðveisluhúsa safna nokkuð sértækar
Þriðjudagur 13. desember 2022 kl. 15:42

Kröfur til varðveisluhúsa safna nokkuð sértækar

Gerð hefur verið ítarleg þarfagreining fyrir varðveislu- og geymsluhúsnæði sem myndi nýtast Byggðasafni Reykjanesbæjar, Listasafni Reykjanesbæjar, Bókasafni Reykjanesbæjar, skjaladeild, menningarfulltrúa, Hljómahöll og umhverfis- og skipulagssviði.

Eva Kristín Dal, safnstjóri byggðasafnsins, mætti á fund menningar- og atvinnuráðs Reykjanesbæjar og fór yfir þarfagreiningu á varðveisluhúsnæði Reykjanesbæjar. Þar kom fram að kröfur sem gerðar eru til varðveisluhúsa safna eru nokkuð sértækar en eru engu að síður nauðsynlegar til að tryggja viðunandi varðveisluaðstæður fyrir safnkost. Ný og betri aðstaða tryggir varðveislu menningararfsins og sögu sveitarfélagsins fyrir komandi kynslóðir, sagði í kynningu Evu. Menningar- og atvinnuráð bæjarins leggur áherslu á mikilvægi þess að koma þessum málum í góðan farveg.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024