Kristín GK komin til Grindavíkurhafnar
Línuskipið Kristín GK, sem er í eigu útgerðarfélagsins Vísis kom til hafnar í Grindavík á tólfta tímanum í kvöld en skipið varð vélarvana suðaustur af Grindavík fyrr í kvöld. Skipið silgdi fyrir eigin vélarafli í fylgd björgunarskips.
Björgunarskipið Oddur V. Gíslason, lóðsbáturinn Bjarni Þór og þyrla Landhelgisgæslunnar voru kölluð út en þó var ekki talin hætta á ferðum. Þó var brugðist hratt við þar sem veðurspáin var ekki góð.
Hilmar Bragi var í Grindavík og tók þessar myndir.