Þriðjudagur 2. maí 2023 kl. 15:43
Krían er komin á Garðskaga
Krían er komin á Garðskaga. Hennar varð vart fyrr í dag og mátti heyra garg í fleiri en einum fugli, eins og sjónarvottur, sem ræddi við Víkurfréttir, greindi frá.
Krían virðist því nokkuð fyrr á ferðinni á Garðskaga nú en undanfarin ár en krían hefur verið að láta sjá sig á þeim slóðum um 10. maí.