Kreppir að hjá refaskyttum

Umhverfisstofnun hefur tilkynnt að ríkið muni ekki greiða sína hlutdeild í refaveiðum á árinu 2010. Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga hefur samþykkt að sveitarfélagið fylgi fordæmi ríkisins og hefur ákveðið að gera ekki ráð fyrir greiðslum vegna refaveiða á árinu 2010. 
Í ljósi þess mun Sveitarfélagið Vogar ekki greiða fyrir refaskott á næsta ári. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort greitt verði fyrir veidda refi árin þar á eftir, segir á vef sveitarfélagsins.

 
	
			

 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				