Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Kraumandi, óvarinn og illa lyktandi pyttur
Þriðjudagur 6. febrúar 2007 kl. 10:50

Kraumandi, óvarinn og illa lyktandi pyttur

Megnan ammoníaksfnyk leggur frá kraumandi og óvarðri tjörn í landfyllingu neðan við Fitjabakka í Njarðvík. Börn eiga greiðan aðgang að pyttinum sem er ekki afgirtur. Þegar blaðamaður Víkurfrétta var við tjörnina á morgun kraumaði sjórinn í henni og ekki var hægt að sjá til botns. Þá var sterkur ammoníaksfnykur á svæðinu.

Fjöldi kvartana barst í gærkvöldi vegna ammoníaksfnyks sem lagði yfir byggðina í Njarðvík frá förgunarstað fyrir álgjallsúrgang nærri Skipasmíðastöð Njarðvíkur. Þar losar álendurvinnslufyrirtækið Alur í Helguvík úrgang frá endurvinnslustöð sinni, en fyrirtækið tekur úrgang frá álverunum í Straumsvík og á Grundartanga til endurvinnslu.
Þegar sjór blandast álgjallinu verða efnahvörf sem mynda gufur og lykt. Heilbrigðisyfirvöld hafa gefið grænt ljós á þessa förgunaraðferð og segja lyktina ekki vera skaðlega.


Alur, álvinnsla hf  rekur álendurverksmiðju í Helguví. Í verksmiðjunni er ál endurunnið úr álgjalli og álríkum efnum er falla til hjá álverum Alcan í Straumsvík og Norðuráls á Grundartanga. Þessi efni voru áður flutt til endurvinnslu í Evrópu, segir á vefsíðu Nýsköpunarsjóðs.

Verksmiðjan er búin nýjum vistvænum tæknibúnaði sem settur var upp í húsnæði Síldarvinnslunnar í Helguvík og starfsmenn Síldarvinnslunnar sjá um daglegan rekstur. Í upphafi er gert ráð fyrir að unnið verði úr um 6 þúsund tonnum af álgjalli og brotaáli á ári og að álframleiðsla verksmiðjunnar nemi um 3 þúsund tonnum af áli á ári. Í upphafi er einungis hluti af afkastagetu verksmiðjunnar nýttur og þarf 5 starfsmenn til vinnslunnar. Með stækkun álveranna eykst magn hráefna. Þá verður verksmiðjan keyrð á vöktum allan sólarhringinn og mun þá þurfa allt að 15 manna starfslið.

Upphafsmenn Als eru Helgi Þór Ingason og Þorsteinn I. Sigfússon og hópur tengdur þeim ásamt Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins. Tæknin er þróuð af AGA, Hertwich Engineering í Austurríki og álframleiðandanum Corus og er hún af sama tagi og notuð hefur verið undanfarin sjö ár í verksmiðju Corus í bænum Voerde í Þýskalandi. Að uppsetningu verksmiðjunnar komu Hertwich sem framleiddi og stjórnaði uppsetningu á vélbúnaði, Síldarvinnslan hf sem setti búnaðinn upp og Iðntækni ehf sem annaðst hönnun og framkvæmdaeftirlit fyrir Al.

 

Myndir: Frá pyttinum í Njarðvík í morgunsárið. VF-myndir: Hilmar Bragi Bárðarson

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024